Davíð Bloggar

22.07.2008 23:51:04 / Davíð

Feitur sendibíll á sumardekkjum.

Nokkrir dagar í sumarfrí og manni er byrjað að klægja í puttana.

Fór hringveginn um daginn, rosa stuð.

Var að vinna á akureyri, Bakkafirði og Eskifirði. keyrði svo suðurleiðina heim. þannig ég fór hringveginn í sumar. Rosa stuð að keyra hringinn á stórum feitum sendiferðabíl á sumardekkjum fullan af dóti.

Við ætluðum að keyra Hellisheiðina frá Vopnafirði til Egilsstaða þar sem við ætluðum að gista.
Það fór ekki betur en svo að við festum okkur ofarlega á heiðinni. já það var slytta og snjókoma þarna í byrjun júlí 8|

Og auðvitað var ekkert símasamband þarna uppí svo við þurftum að labba niður alla helvítis heiðina í slyttu/rigningu og roki í átt að vopnafirði. við klæddum okkur í öll fötin okkar og vá hvað við vorum orðnir blautir og þreyttir þegar við loksins náðum símasambandi eftir 1.5 tíma labb.
Ég hringdi á 112 og löggan frá vopnafirði kom og sótti okkur. síðan kom björgunarsveitinn og hjálpaði okkur að snúa bílnum.:haha:

Við vorum samt ekki á þeim buxunum að gefast upp því við áttum pantað hótel á Egilsstöðum svo við ákváðum að keyra vopnafjarðarheiðina uppá hringveg en þrátt fyrir að við keyrðum þessa heiði auða 12 tímum áður þá var hún snjóuð í kaf líka.

Vorum virkilega tæpir að komast yfir hana. lendum síðan uppá hóteli 4 um nóttina  á laugardegi.
Mikið var ég sáttur að komast í heita sturtu og undir sæng.

Eyddum 8 dögum í þetta ævintýri. En það er þó gaman að geta núna loksins sagt hafa farið hringinn. :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 22:21:46 / Davíð

Vann hnjúkinn !!

Eftir síðustu áramót þá fékk ég þá flugu í hausin að sniðugt væri kannski að labba uppá hvannadalshnjúk. þegar ég mætti í vinnu eftir frí þá stakk ég uppá þessu við yfirmenn mína og samstarfsmenn að sniðugt væri að fyrirtækið myndi kíkja.

Og áður en ég gat hugsað mig betur um þá var ferðin ákveðin 10 maí.
Svo eftir þrotlausar æfingar.... 5 ferðir á esjuna :$ þá kom stóra stundin.

Fórum 6 frá fyrirtækinu. yfirmenn mínir og konurnar þeirra ég sjálfur og Egill. 2 sem ætluðu upphaflega að koma komust ekki vegna meiðsla.

Vegna veðurs var ferðinni seinkað um 2 tíma, þ.e.a.s lagt af stað klukkan hálf 6 um morgunin en ekki 4, sem var bara ágætt. ferðin tók 14 og hálfan tíma upp og niður.

Fengum hundleiðinlegt veður. Það var mjög skýað alla ferðina þannig útsýnið var ekkert.
það rigndi á okkur fyrripart ferðarinnar og var alveg blind frá 1100m og nokkuð hvasst á sjálfum toppnum.


Þarna er ég kominn á toppinn á Hvannadalshnjúk 2110m hæð, hæsta tindi Íslands 8)
síðasti spölurinn er mjög brattur og voru allir komnir í mannbrota og með klífuraxir.

Þetta var hið mesta púl, þegar ég var loksins kominn á jafnsléttu þá stóð ég varla í labbirnar.
Það sem var kannski verst að ég "sólbrann" svo heiftarlega í andlitinu. Þótt ég hafi tekið með mér sólarvörn uppá hnjúkinn þá bar ég aldrei á mig því aldrei sást neitt til sólar.
varirnar á mér urðu tvöfaldar og ég flagnaði allur.

En þrátt fyrir allt púlið þá var þetta alveg þess virði, því á bakaleiðinu niður af hnjúknum í rétt nokkrar mínutur fóru öll skýin af hnjúknum og við fengum að sjá hvað við höfðum farið uppá og það var alveg geggjuð upplifun. myndin tekin í 1800m hæð.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 22:17:48 / Davíð

jááá :)

Fór í helvíti gott partý þarsíðustu helgi, kúnni sem við höfum mikið unnið fyrir bauð okkur í RVR í sumarhúsið sitt við Meðalfellsvatn.
Sushi í forrétt og svo naut og lambalundir, var alveg geggjaður matur hjá honum.
Fengum síðan allir að taka í sjóköttinn hans, hrikalega var það gaman, einga stund uppí 60 mílur, verst bara hvað það var kallt, kollurinn var orðinn allur hrímaður þegar ég steig í land.

Við mestu hörkutólin fengum okkur síðan smá sundsprett í vatninu eftir að hafa hlýað okkur smá áður í heita pottinum. það var... já frekar kallt.

það er kominn nýr köttur á Fellasneiðina heima, algjör dúlla og svakalega ofvirkur greyið.



Team RVR fór á esjuna síðustu helgi, náðum flottum tíma 57min að steini. var nú helvíti hmikið puð það sem smá þynka var í gangi hjá mér, skrapp á múrarakynningu með Mána uppí Húsasmiðju kvöldið áður.

Var síðan önnum kafinn restina af deginum fór í Barnafmæli til Frænda hennar Kristínar og svo út að borða um kvöldið með mömmu og pabba og 2 bræðrum pabba ásamt konum og Ömmu.

Er farið að hlakka alveg hrikalega til að komast í sumarfrí, ætla að taka mér 3 vikur í sumar og svo 1 viku í haust. Flatmaga á sólarströnd, get ekki beðið. Förum 7 Ágúst.

Verður síðan tekið hressilega á því næstu helgi, við strákarnir í vinnunni ætlum að leigja bústað við Apavatn og drekka úr okkur allt vit. það verður stuð.

Skrapp um daginn til dokksa útaf mallakútnum mínu, dáldið síðan ég kláraði pilluskammtinn minn. passaði mig þó á því að fá ekki sama skottulækninn og síðast, nokkuð sáttur með þennan var nú eh að tala um að fá að spegla mig aftur við tækifæri, ég er nú samt ekki alveg á þeim nótunum. En hann sagðist setja æðalegg í sína sjúklinga þannig ef ég færi þá væri allavega víst ég fengi kæruleysissprautina mína á réttan stað :s


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 21:13:16 / Davíð

Við í vinnunni fórum á esjuna á laugardagsmorgunin á tímanum 1:06 nokkuð góður tími bara.
Tók samt djöfullega mikið á því ég var ekki sá allra hressasti um morgunin.

Fór til vinkonu Kristínar í Ofurhetjubúningaafmæli síðan um kvöldið.
var sosem bara alveg ágætt, þekkti lítið af liðinu nema nokkrar vinkonur hennar og Rúnar.

Ég keypti mér kúrekabúning í hókuspókus og var Viddi úr Toy story. Kristín var Lara Croft úr Tomb Raider og vorum við bara virkilega kúl. Svo vildi til að ljósmyndari superman.is býr á hæðinni fyrir neðan stelpurnar svo hann skrapp í heimsókn.


Ég var um daginn að láta hugann reka og hugsa að það eru bara 6 ár! í fertugsaldurinn.
hugsanir mínar um að ég væri að verða gamall fengu byr undir vængi sína þegar boð í 10 ára fermingarafmæli kom í dag.

Fór um daginn í 66° norður að versla útivistarföt, keypti mér mjög vandaðann jakka og buxur í stíl. eina flíspeysu, eina hettupeysu og vettlinga. heildarkostnaðurinn var rúmur 70þús kall :$

En þar sem þetta var á lagerútsölu þá borgaði ég skítnar 12þús krónur. jakkinn og buxurnar sem hefði áttu að kosta 50þús kostaði 5þús. ástæðan samt fyrir því þetta er svona ódýrt er að liturinn er sennilega ekki að heilla marga enda voru sömu flíkur bara í öðrum lit með fullt verð í búðinni. En ég læt appelsínugulan lit ekkert stoppa það að kaupa það á 10 sinnum ódýrara verði. :haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 20:23:50 / Davíð

Alvara og gaman eiga ílla saman

Mikið er ég ánægður með að vetri fer bráðum að ljúka, dagarnar fljúga áfram og hver dagurinn verður bjartaði en sá síðasti.

Hefur sosem margt gerst síðan síðast, en kannski það helsta er að ég og Alli fluttum um daginn, reyndar ekki langt aðeins á hæðina fyrir neðan þar sem búið er að selja íbúðina á 3 hæðinni.
Erum nú bara nokkuð sáttir enda töluvert stærri íbúð, sama leiga og + uppþvottavél 8|
Fékk líka nýjan vinnubíl til umráða. glænýjan WV caddy. alveg fínasta kerra.
Keypti mér nýja tölvu, alveg þrusuvél og 24" flatskjá sem ég er ennþá í skýunum yfir. :klikk:

Ég fór Austur til Bakkafjarðar í síðustu viku að vinna, flaug á miðvikudegi og kom heim á föstudegi. Millilendi á akureyri og þaðan til Vopnafjarðar og keyrt síðan til bakkafjarðar.

Hafði aldrei grunað hversu örar flugsamgöngur eru á íslandi. Á leiðinni heim þá flaug ég fyrst til Þórshafnar áður en ég kom til akureyrar. rétt að stoppa til að henda Mogganum útúr vélini. það fannst mér skondið.

Eyddi síðan helginni að liggja í leti. það var afskaplega ljúft. Eftir allt stressið og langan vinnutíma eftir ferðina austur.

Fór til Grundó þarsíðustu laugardag. hitta mömmu og pabba og svo auðvitað hann Halla þar sem hann átti nú afmæli kallinn. Skrapp síðan á ball um kvöldið, grímuball.

Var í hálfgerðum vandræðum með búning en áður en ég lagði af stað til Grundó þá stoppaði ég í kringlunni að kaupa mér nærur. ákvað að kíkja í leikfangahornið og fann þessa fínu batman grímu sem passaði á mig. fann nú einga skikkju sem passaði en fattaði fljótlega að ég átti þessa fínu "skikkju" heima á Grundó.
Mamma hafði saumað fyrir mig svört og þykk gluggatjöld fyrir tja... öruglega 10 árum.
Annað gluggatjaldið varð að þessari fínustu skikkju með smá bandi í gegnum sig. :haha:

Var nú ansi þreyttur á ballinu þar sem ég hafði snarað mér uppá Esjuna um morguninn en drykkurinn "töfrateppi" bles líf í kallinn og þraukaði ég allt ballið.

Lét loksin verða af því að útvega mér myndir frá verðlaunaafhendingunni hjá iðnmannafélaginu.
Hér er ég og Óli í góðum gír. Náði líka að vekja smá athygli að þeim misstökum sem átti sér stað, efast samt það verði nú eitthvað gert í þeim en alltílagi að láta í sér heyra þótt seint sé.




» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 13:22:43 / Davíð

já Davíð bloggar!!!

á þessum tíma veikinda er kannski rétti tíminn til að babbla aðeins frá sér nokkrum orðum.

Það hefur þónokkuð spennandi gerst uppá síðkastið, þar að kannski helst að ég skrapp í helgarferð til Finnlands fyrir nokkru. Ekki alveg helgarferð eins og ég hafði mér best kosið en ferð til Finnlands hvort sem er.

Fyrirtækið sem ég vinn hjá hefur tekið smá breytingum. Stækkandi umsvif þar af helst.
Ástæða ferðarinnar var að vinna fyrir stóran kúnna sem er rótgróin í íslensku samfélagi.

Verkefnið tók sér stað í Helskinki og var fremur spennandi en hræðandi í senn.
Ég fékk þó smá tíma fyrir túristan í sjálfum mér og gat því skoðað borgina með heilum hug.
skemmtileg borg að skoða, bæjarlífið fremur rólegt og huggulegt a.m.k því sem ég fékk að kynnast. þó raðirnar á skemmtistaðinu voru frekar líkar hér á landi.

Það gæti vel verið ég skelli nokkrum ljósmyndum inná vefinn frá ferðinni.

Flugsamgöngur til Finnlands hentaði ekki alveg mínu tímaplani svo ég þurfti að millilenda í stokkhólmi og síðan Osló í bakaleið. skemmtileg ferð var það.

Nú, ég lét loks verða að því að fara til meltingarsérfræðings, hann kaus að senda mig í speglun til að reyna að sjá hvað amaði að mér.

Nú speglunin var eitthvað sem mér langar mest til að gleyma, Kæruleysissprautu sem er beitt fyrir athugin virkaði ekki sem skildi eða alls ekki neitt, þar sem læknirinn gat ekki fundið á mér æð, kvartaði undan mjúkum æðum. svo sullinu var sprautað undir húðina á mér og sat ég eftir með bólgið handabak og olnboga. Góðu fréttirnar eftir hryllingin voru þær að ekkert alvarlegt fannst, annað en miklar bólgur og óþétt magaop.

Fékk Litlar töflur sem mér var gert að taka, ég sosem hef ekki verið sá duglegasti að taka þær en verkirnir hafa verið fátíðir sem er gott.

Ég skipulagði vinnustaðardjamm fyrir starfsfélaga mína núna síðustu helgi.
Ferð í Adrenalíngarðin á Nesjavöllum, heitur pottur og bjór og svo út að borða á kaffi París.
Mér til mikillar ánægju þá vaknaði ég laugardagsmorgunin með ælupest og hita. Var ég því ekki alveg sá hressasti í Adrenalíngarðinum. En ég er þó nokkuð sáttur að ég hafi komist yfir allar þrautirnar, þar á meðal klifra upp 9.5m símastaur og standa uppá honum.

En ég þurfti því miður frá að hverfa þegar aftur var komið í bæinn vegna slappleika og missti ég því af Kvöldverðinum á kaffi París.

Hraustmennið ég held ég væri orðinn góður á mánudagsmorgni og skundaði ég því í vinnu en þurfti frá að hverfa um hádegisbil og hef ekki mætt í vinnu síðan.

Ég ákvað að gera mér glaðan dag, í dag að ég fór og sótti nýja tölvuskáinn sem ég hafði pantað mér og það ekkert slor, heldur 24" af dýrustu gerð. Tölvan sem ég pantaði mér einnig var því miður ekki komið þar sem ákveðin tölvukassi sem ég vildi fá er ekki komin í sölu frá framleiðanda eins og til átti að vera. því þarf ég að biða með gamla jálkinn í nokkrar vikur í viðbót.

Hef núna í kvöld verið að horfa á Prison break í 720p Háskerpugæðum sem er nú bara nokkuð frábært verð ég að segja. Ætlaði reyndar að afmeyja skjáinn með biómynd í 1080 punkta háskerpuupplausn en því miður er gamli jálkurinn ekki til þess brúklegur að spila þannig mynd.

Hér á Grettisgötunni er frá því að segja að hér liggur allt í hers höndum.
Íbúðin er farin á sölu og leigandi minn er að gera upp anddyrið hjá mér, setja nýja hurð og herbergið sem hann Aðalsteinn er ný fluttur inní fær make-over líka.
Það er ekki langt síðan við náðum að púsla öllu dótinu hans saman í herbergið þá þurftum við að flytja allt heila klappið inní stofu og Alli greyið þarf að sofa í sófanum.

Þar sem langt síðan hefur verið bloggað þá er skemmtilegt að segja frá því að í sumarfríinu mínu þá heimsótti ég eyju litla suður af íslandi og eyddi þar verslunarmannahelginni.
Það var bara mikið fjör þó mallakútur minn hafi ekki verið í stuði fyrir 4 daga áfengisdrykkju þá var þetta bara í heildina mikið fjör.
læt ég hér eina mynd af mér og Kristínu kærstu minni sem tekin var á fyrrgreindri eyju.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 23:11:10 / Davíð

R.I.P Volvo 440

Gerður 20.06.89 Pressaður 24.07.07

Volvo gamli var fyrsti bílinn sem ég keyrði, seinna meir fékk ég bílpróf og áttum við samleið eftir það til dagsins í dag. Það eru mörg ævintýrin sem við upplifðum saman oftar en ekki þá hefði ekkert ævintýri verið hefði ekki verið volvo gamla.

Volvo gamli hefur staðið fyrir sínu öll þessi 18 ár, þótt það hafi ekki alveg verið fyrirhafnarlaust þá hefur hann staðið sig mun betur en margir aðrir.
Ekki er alveg víst hvað hann var ekinn þar sem kílómetramælirinn var stopp í mörg ár.
En líklegt er að það sé um 180.000km.

Volvo'inn hefur staðið með mér í gegnum súrt og sætt, gegnum árin hefur líf okkar saman lítið breyst þótt það gerist allt í kring. tryggri og betri vin varla hægt að eiga. Þótt gamaldags yfirbragð væri á boddyinu þá má ekki gleyma að hann var Grand lux edition. Þægindin vöntuðu ekki og alltaf hægt að reyða sig á hann til að flengja litlu smátussurnar í kringum hann þegar á reyndi.

Ættir hans má reykja til Svíðþjóðs, en hann var ekki alveg hreinræktaður. Hann var búinn til á færibandi í Hollandi og fékk síðan Vél og gírkassa frá Frakklandi.

Með síðustu ævintýrunum sem volvo gamli upplifði var þegar við strákarnir fórum til Spánar síðasta sumar. En það var þegar við ókum heim frá keflavík til Grundó. Kuplingsbarkinn slitnaðir nánast á bílastæðinu á keflavíkurflugvelli og þurfti ég að keyra hann án kúplingar heim til Grundó. Sem þótti minnsta mál fyrir bíl á þessum mælikvarða.

Síðasta ferð hans til Grundarfjarðar er þó mjög minnistæð. hún var á aðfangadegi núna síðustu jól þegar við Halli vorum að drífa okkur heim í jólasteikina þar sem hann fékk að njóta sín til fullnustu á tómum þjóðvegi.

8 janúar Eftir fórnfúsleg skildustörf þá gerðist það hann fékk gríðalegt kíghóstakast. hann flat-line'aði í smá stund gat rétt svo hóstað sér heim á lað. Þar fékk hann að hvíla sig eftir kvöldið en vaknaði svo aldrei aftur......

Eftir að hafa verið legið á dánaðarbeðinu í dái í nokkra mánuði og allar aðgerðir til að fá hann til að vakna á ný þá leyfði ég honum að hvíla í friði og lét Vöku hann í hendur.

Þar var honum tekin með hlýum höndum og fékk hann sómasamlega útför og bílleyfar hans notaðar til góðs.

Vertu sæll elsku vinur.


 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 17:56:54 / Davíð

trallalílalala

KOMINN Í SUMARFRÍ !!!!

 veii! veii! veii!

 tæknilega séð byrjaði ég eftir vinnu í gær, en ég var að vinna smá í dag svart fyrir pabba vinkonu hans Andra. glæsilegt að fá svona góða summu beint í vasann.

Er mjög freistandi að fara útí sjálfstæðan rekstur. er bara ekki alveg að nenna öllu vesenu í kringum það :^)

Ég bauð Kristínu út að borða í gær, við fórum á ítalíu. Fyrsta skiptið mitt þar. ég var nú ekki alveg nógu ánægður. það var svo svakalega heitt inná staðnum að maður missti eiginlega alla matarlyst. fannst píparsteikin mín ekkert sérstök heldur.

Samt gaman að gera sér smá dagarmun. halda uppá hálfsárssamband og ég komin í sumarfrí 8)

Er að fara í innflutningspartý hjá Agli í kvöld, reyna að hella mig fullann og spæla alla yfir því að ég er komin í sumarfrí.;)

var ég búinn að minnast á það, ég er kominn í sumarfrí ?

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 23:40:22 / Davíð

3 dagar :D

Jæja, ég var í svo miklum pirringi á sunnudaginn síðasta að ég ákvað að lengja sumarfríið mitt í heilar 3 vikur. byrja í næstu viku og vá ég get varla beðið.

Pirraður á þessu ofnæmisdrasli og þessum hósta og læti. heilar 3 vikur í að gera ekki neitt nema slappa af og drekka bjór og vera latur. vííi.

kannski verð ég duglegur og klára að mála það sem á eftir að mála í íbúðarræksninu mínu. ;)

kannski líka massa duglegur og fer með bílinn minn á verkstæði, hann er ennþá að rotna síðan ég skildi við hann síðast, búinn að vera ógangfær síðan í janúar. eða fer með hann á haugana. sem ég held verði nú kosturinn sem ég mun velja, fer að líða að því ég þarf að borga af honum bifreiðagjöldin, ætla ekki að gera það aftur nema greyið verður gangfært.

búið að vera smá pirringur hjá mér í vinnunni í dag, eftirmálar eftir akureyrarferðina. en skiptir mig ekki þannig máli, veit ég hef rétt fyrir mér ;)

en jæja Kristín komin heimi úr búðinni með BBQ handa mér. :D

kveð að sinni. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 21:06:02 / Davíð

víbbí !!!

Ætli það sé ekki vel við hæfi að rita nokkur orð í dag.

Akureyrar æfintýrinu lauk loksins í gær. var alla síðustu viku þar og var að koma heim í bæinn í gær, 55 yfirvinnutímar á 7 dögum. með ógeðslegt frjóofnæmi á blastandi styrk, vaknandi með astmakast hverja einustu nótt. ég hef fengið nóg. :!:

Fínt að koma heim í bæinn í faðm kærustunnar aftur.

Fer að styttast í það að ég taki mér sumarfrí. Get varla beðið, tek mér allavega viku frí á milli Grundarfjarðarhelgarinnar og Verslunnarmannahelgarinnar. ætla svo að sjá til hvort ég taki mér viku meira eftir það. ætla að spara restina af sumarfríinu þangað til í haust. Spá í að skella mér aftur í smá ferð til Danmerkur. Segja Hæ við Stulla og svo auðvitað sjá hvernig Elmari hefur gengið að koma sér fyrir.

Við Kristín förum á Þjóðhátíð í eyjum um versló, ætli ég láti mér það ekki nægja sem einu "utanlandsferðina í sumar" þótt ég væri alveg til í að flatmaga á sólarströnd með bjór í nokkrar vikur.

Ég er ennþá að kljást við tryggingastofnun ríkisins vegna vinnuslysins sem ég lendi í, í apríl. :frown:Þ
Talaði við leiðinda kellingu í dag sem sem fór alltíeinu að kalla mig Jónas í símanum.8| Ég hef einungis fengið rúman 9þús kall borgaðann af þessum 62þús kalli.
bætir ekki úr skák að allir eru farnir í sumarfrí núna svo ég þarf að bíða ennþá lengur.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 00:05:28 / Davíð

Trallala.

Jæja þá er maður kominn aftur í stórborgina.

Búið að vera mikið ferðalag á mér síðustu 2 vikur. Keyrði Norður á Akureyri í síðustu viku og var að vinna þar út vikuna.

Flaug síðan suður á föstudagskvöldið og fór beint aftur að vinna í bænum.
Var mikið glaður þegar ég kom loks heim! seint á föstudagskvöldið. átti síðan alveg frábæra chill helgi.

Flaug aftur norður á þriðjudaginn og keyrði síðan heim í dag. 

Einhvernstaðar týndist afmælisdagurinn minn þarna í ferðalaginu en hafði þó littlar áhyggjur af því þar sem haldið verður uppá hann síðar ;)

Fer síðan norður aftur í næstu eða þarnæstu viku. vona samt það verði í þarnæstu, er kominn smá ógeð á hótelgistingum.

Ég hafði það síðan bara ágætt í dag, ég hætti klukkan 5 og fór heim og fékk mér bara bjór og pantaði pítsu og horfði á Terminator 1 og 2. það var alveg ágætis chillerí.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 01:23:21 / Davíð

Fortíðarþráhyggja.

Jæja þá er kostningavitleysan loks búin.

Nú geta allir haldið áfram með hversdagsleikann... er það ekki ?

Eftir erfiðan föstudag þá fór ég að strax að lúlla eftir vinnu. þegar ég vaknaði aftur þá var ég strax kominn með harðsperrur í labbirnar eftir að hafa verið að krönglast á þessu þverbratta þaki um daginn. Fór inní stofu og fékk mér bjór. nokkrir vinir hans Halla kíktu í heimsókn og fóru þeir síðan niðrí bæ, en ég ákvað að sleppa því enda fór ég að vinna á laugardaginn.

Á laugardeginum reyndi ég að djamma aðeins, við horfðum á kostningavökuna og sturtuðum í okkur Jack Daniels. vinnufélagar Halla kíktu á okkur og svo fórum við niðri bæ. Ég stoppaði stutt enda var ég orðinn dauðþreyttur. Halli var í litlu stuði líka svo við fórum heim aftur og sofnuðum yfir kostningavökunni.

Fyrr um kvöldið þegar við vorum að byrja að djúsa þá fórum við í armbeyjukeppni. þótt við Halli höfðum yfirburði yfir Reykjavíkurstrákunum þá höfðum við betur sleppt því, því við vorum báðir að drepast úr harðsperrum í dag :$

Fyrir þá sem ekki vita þá er lyklaborðið mitt nokkuð skrautlegt, hefur mátt þola miklar barðsmíðar, íkveikju og andlegar árásir. En þrátt fyrir nokkra týnda takka og "straumlínulagað yfirborð sitt" þá hefur það staðið fyrir sínu í fjölda ára.

En núna um daginn þá gaf það upp öndina, heil takkaröð var orðin óvirk og tilraunir til endurlífgunar misheppnuðust. Ég mældi að það er komin rof í plastprentið og efast um að það sé eitthvað hægt að laga það, þó veit ég að það er til svona rafmagnsleiðandi málning uppí bílanaust notað til að laga afturrúðuhitara, keypti þannig einu sinni fyrir Volvo gamla.

En þar sem það svarar varla kostnaði þá fór ég útí BT og keypti mér ódýrasta lyklaborðið sem ég fann, var á 1590 kr og var ég svona alveg sáttur við kaupinn, þar til ég fór að reyna að skrifa eitthvað á það. þetta er svona mini lyklaborð, þannig að það er lítinn Backspace takki og lítinn enter takki, Home, del, end og þeir takkar eru líka klesstir upp við stafalyklana svo það er búið að taka mig heillangan tíma að venjast að skrifa á það.

Takmarkað orðaflæði hér á vef mínum má reykja til þessa nýja lyklaborðs, svo það er ekki mér að kenna. ok ? :haha:

Það er mikill hæfileiki að geta hlegið að sjálfum sér, stundum þegar ég fer í fortíðarfílinginn þá les ég gamlar bloggfærslur eftir mig. Sumt af því sem ég hef skrifað fær mig til að hlægja mikið, þó kannski ekki endilega það sem ég hef skrifað heldur svo mikið meira sem hefur hent mig á sama tíma.

Annað sem skemmtileg er að gera er að skoða myndir, og þá sérstaklega myndir sem teknar voru á sama tíma fyrir ári eða tveim.

Fyrir ári síðan, uppá dag þá var bílskúrspartý heima hjá Halla og smíðuðum við Valslöngu.

good times, good times.:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 00:35:08 / Davíð

Atli Frændi.

Litla krílið hennar systur minn var nefndur á sunnudaginn síðasta, átti að skýra þá líka en því var frestað.

Atli Svavarsson heitir litli kallinn.

Ég stóðst ekki mátið og gaf honum smá nefnunargjöf. Stóri frændi verður nú að dekra aðeins við litla frænda. :haha:
Hér er hann að leika sér að nýja dótinu.

 

Það hefur orðið smá breyting heima hjá okkur Halla, ég tók mig til 1 maí og skellti upp hillum inní stofu, núna þurfa græjurnar og allt draslið okkur ekki lengur að húka á gólfinu. Ég gerðist líka það góður að ég sagaði til og skellti upp parketlistum inní forstofu hjá okkur. Þó að íbúðin okkar bjóði ekki uppá það að verða nokkurntíman glæsihýsi þá hækkaði hún allavega aðeins í glæsileika eftir breytingarnar. Spurning að bjóða Völu Matt í heimsókn ?

Þessa vikuna er ég búinn að vera á námskeiði útí Rafiðnaðarskóla fyrir hádegi. Forritunarlegir pick örgjörvar var viðfangsefnið. þegar ég útskrifaðist fékk ég gefins einhverja 40 tíma og fannst mér vera kominn tími að nota þá eitthvað.

Var dáldið spes námskeið samt, vorum þarna 5 gaurar í heildina sem sátum námskeiðið og ég var yngstur í hópnum. viðfangsefnið vafðist lítið fyrir mér enda var forritunin mjög svipuð og ég hafði lært þegar ég var í iðnskólanum. var meira svona upprifjun. í lok námskeiðiðsins þá var okkur gefið eitt lítið kríli til að forrita heima og ég held hann verði bara tilvalinn í project sem ég hef verið að hugsa um að smíða í þónokkurntíma. meira um það síðar.

Við Halli fórum í bió á laugardaginn, Stórmyndin Spiderman3!
Við ætluðum í 10 bíó útí smáralind og vorum við mættir hálf 10 til að kaupa miða, neinei var ekki bara uppselt á myndina, en við gátum keypt miða þar á Regnbogann svo við gerðum það og keyrðum aftur heim í bíóhús sem er nánast í bakgarðinum hjá okkur. :S góður rúntur það.:haha:

Veit nú ekki hvað ég á að segja mikið um myndina, hún var alveg ágæt afþreying og flottar tæknibrellur og svona. En mikið var hún löng og mikið af drama og grenjuatriðum. :$

Ég keypti mér nýjan harðandisk í tölvuna líka á laugardaginn og búinn að færa gögn framm og til baka eins og ég vill hafa þetta, endaði síðan á því að strauja tölvuna enda kominn tími á.
núna er þetta allt annað líf og nóg pláss og get haft tónlistina mína á sér disk en hún var fyrir löngu búin að sprengja af sér diskinn sem ég hafði hana á.

Jæja þið sem hafið verið að skamma mig fyrir blogg ritstíflu þið getið núna tekið gleði ykkar að ný, komnar tvær stórglæsilegar ritningar. ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 00:06:14 / Davíð

One of those days.

Ætli það sé ekki komið tími að láta heyra smá frá sér.:o

Það hefur svo lítið verið um að vera hjá undanfarið nema vinnan og nenni ekki að blaðra um hana endalaust.

Fimmtudaginn í þarsíðustu viku gerðist smá ævintýri í vinnunni sem þó vert er að minnast á.
Ég var að vinna útí kópavogi að setja upp loftnet og gerfihnattadisk til að ná Hotbird gerfihnettinum. til að ná honum þarf stóran disk og ég var með 120cm ferlíki.
Húsið eða veggurinn sem diskurinn fór á var fremur hár og stóri stíginn minn hefði eflaust ekki náð, en það hefði heldur ekki verið hægt vegna stærðarinnar á disknum, hefði aldrei náð að klöngrast með hann.
Við fengum leigðann þennan gamlann jálk Volvo kranabíl. bílnum var bara parkerað fyrir okkur fyrir utann og labbirnar settar út og eina sem ég þurfti að gera var að stjórna kranananum.

jæja spennandi verkefni, vinna hátt upp og stjórna stóru vinnutæki. þegar ég var búinn að setja upp diskinn og stilla hann af og var að fara að byrja á lofnetsstönginni þá fór einhver kall að ybba sig á verkstæði fyrir framan hús, sagði hann gæti ekki bakkað bílnum sínum inná verkstæðið með kranabílinn útá plani. Ég lít ekki á mig sem mikið fyrir að rífast en kallinn bara var svo dónalegur að ég svaraði bara í sömu mynd og var dáldið farið að fjúka í mig, enda var nóg pláss fyrir kallinn að bakka druslinni sinni. :S

Hann gaf sig ekki þrátt fyrir álit mitt á aksturhæfni hans og endaði ég á því að hringja í kranaþjónustuna og fá upplýsingar hvernig ég ætti að færa ferlíkið. Ég fékk ekki leyfi að færa hann og kallinn sem stjórnaði var útí mosó og kæmi ekki fyrren eftir 20 mín.
Ég sagði bara kallinum að hann yrði að bíða eða fara eftir því sem ég var búinn að segja. Ég gat heldur ekkert unnið þar sem bílinn hans stóð nú fyrir krananum og þurfti ég að bíða líka. loks kom kranakallinn en þá hafði verkstæðiskallinn gefist upp og komið bílnum sínum inná verkstæði eins og ég var margbúinn að segja honum að væri alveg hægt.

Ég spurði verkstæðiskallinn eins hæðnislega og ég mögulega gat hvort hann vildi ennþá að kraninn yrði færður. það var gaman :klikk:

jæja ég gat loksins byrjað aftur að vinna og ætlaði mér að bæta upp tímann sem ég hafði tapað, skellti upp loftnetstönginni á mettíma, en þegar ég var að herða síðasta boltann þá skrapp stóri feiti skiptilykill af boltanum og beint í smettið á mér:!:
Ég öskra eins og bavíani og hræði gömlu hjóninn sem voru á röltinni frammhjá byggingunni. Ég fékk lykilinn á munninn á mér, sprengi vörina á mér á 2 stöðum og allt í blóði. Stóri feiti skiptilykill datt niður og beint í eitthvað gamallt ónýtt úti flúorljós, smallar því. það var fullt af grænu vatni sem sullaðist fyrir framan innganginn á húsinu.8|

Þegar ég svona var búinn að átta mig almennilega á stöðinni eftir allt þetta sem var búið að gerast þá finn ég eitthvað einkennilegt uppí mér með túngunni. Ég þreifa með puttanum á mér og mér til mikillar ánægju þá hafði ég brotið eina tönn í neðri tanngarði. Ég held að reiðiöskrin mín hafi verið á svipuðum mælikvarða og sú fyrstu. Ég dríf mig niður á jörðina hleyp inní hús og beint inná bað og lít í spegill. Það hafði kubbast efri hlutinn af tönninni og þar sem ég var í tannréttingum þá er ég buínn að vera með járnboga á innanverðum tönnunum, hann brotnaði næstum allur af líka.:!:

Eiginlega ósjálfbrögð viðbrögð þá hringi ég strax í Gísla Tannréttingagaurinn minn og segji honum harmsögu mína.
Hann bað mig að koma strax, ég hringdi í Hjalta yfirmann sagði ég væri farinn og hvað hafði gerst. held hann hafi verið meira shockeraður yfir þessu en ég :D. Tannsi tók restina af boganum í burtu og pantaði fyrir mig neyðartíma hjá tannlækninum mínum uppá skaga og lakkaði yfir brotið þar sem mér kulaði djöfullega í þessu.

Hörkutólið ég fór siðan beint aftur að vinna og kláraði draslið. og mikið rosalega var ég feginn að verkstæðiðgaurinn varð ekki vitni af þessu, það hefði sko toppað þennan grútleiðinlega dag:!:

Ég fór siðan daginn eftir uppá skaga, Tannsi þar plastaði uppí það sem vantaði af tönninni. Fór siðan eftir helgina til Gísla og hann límdi nýjan boga uppí mig, bara núna stærri :Sþar sem ekki mátti líma á slösuðu tönnina þar sem ekkert hald er í henni.

Jæja ég er búinn að jafna mig alveg núna, vörinn orðin eðlileg, búinn að venjast nýja boganum og bara hress og kátur, en þetta litla ævintýri kostaði mig 62þús kall í tannlæknakostnað en ég fæ það sem betur fer borgað til baka úr tryggingunum.

og hey! eingin leiðinda comment að ég eigi ekki að nota skiptilykla !

 

Davíð.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 00:30:40 / Davíð

Forever is, a world i can't descripe.

Davíð duglegur já.

Ég þreif fiskabúrið í dag. alveg gífulega leiðinlegt en það er svo mikið skemmtilegra að sjá litlu krílin í hreinu búri og kristaltært vatn. Nemó2, Júlli, Kristín og Dusty eru bara virkilega sátt núna.

Einar kíkti í heimsókn í dag, hann dróg mig með sér á gólfæfingarsvæðið. þegar ég steig útúr dyrunum þá bara vá hvað það er gott veður og bara fannst vera komið geðveikt sumar eitthvað.

Þegar við vorum komnir á svæðið þá var helvíts rok og síðan kom haglél og snjókoma á víxl. 8|
dróg öll orð mín til baka um góða veðrið og hvað það væri komið sumar.

Íbúðin fékk líka sinn skerf af hreingerningum, var orðið dáldið mikið ullapjakk hjá okkur. en allt skínandi núna.

Ég hef skrópað að fara í klippingu núna í nokkrar vikur, aldrei tími til að fara. alltaf búið að loka þegar ég er búinn að vinna. orðinn smá þreyttur á lubbanum svo ég tók bara upp rakvélina góðu og snoðaði og kostaði mig ekki krónu 8)

Ég er búinn að vera að nauðga nýja diskinum með Avril Lavigne í dag. var nú ekki alveg að fíla hann í byrjun en það breyttist fljótt og er hann alveg að standa sig í stykkinu.

Annars var helgin hjá mér fremur viðburðarlítil. gerði eiginlega ekki neitt nema glamra smá á gítarinn og hanga í tölvunni.

Ég var annars að uploada myndum áðan úr símanum mínum og myndavélinni. var orðið dáldið mikið uppsafnað. fann þessa úperfínu mynd af Halla á kanntinum. 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31